Monday, October 30, 2006
Dadara....
Fyrsta tönnslan komin, eða allavega er hún að koma....Mamma & pabbi fundu fyrir einhverju hörðu í neðri gómnum í gærkvöldi, & ekki er um að villast. Þetta er tönn ! Nú er bara að bíða spennt & sjá hvort hún sé ekki örugglega hvít & skínandi þannig að hægt verði að bursta hana þannig að hún glansi eins & gull & svo er bara að bíða eftir restinni af stellinu......
posted by Gógó @ 4:18 AM   2 comments
Tuesday, October 10, 2006
Hor hor og meira hor

Haldið ekki að horið sé komið aftur - og tvice as ugly!
Við Iða vorum sem sagt bara heima í dag að þurrka hor, sjúga hor, þurrka meira hor og kannski smá slef með því..

Annars er það að frétta að Iða er búin að þróast úr atvinnuormi.. nú ferðast hún um íbúðina í nokkurskonar rassaköstum - mjög frumlegt en þetta er víst nýji skriðstíllinn á tímum endalausra parketa! Besta við þetta er auðvitað að á þessum ferðalögum moppar hún smá línu af parketinu, það er alveg spurning um að sauma rykmoppu á rassinn á öllum buxunum hennar og fá hana til að fara í skipulögðum ferðum fram og til baka um stofuna...
posted by Gógó @ 3:28 PM   5 comments
Monday, October 02, 2006
Á fullri ferð....
Jæja nú er ég bara byrjuð að skríða á fullu út um allt......& ef að hluturinn er nógu & spennandi þá er bara nokkuð góð ferð á mér sko. Mest toga ég mig áfram á höndunum, en lappirnar gera svona hundasund á meðan & sprikla útum allt. Nú á ég bara eftir að læra að setjast upp sjálf & þá er ég bara orðin fær í flestar betri samkomur, allavega hér á stór-Reykjavíkur svæðinu.

Sjáumst !
posted by Gógó @ 12:06 PM   0 comments
about me
My Photo
Name: Gógó
Location: Reykjavík, Iceland

Hér er ég; um mig; frá mér; til mín!

Þetta helst
Eldra efni
Um mig
Ég er næstum tveggja ára skessuskott og hér má lesa um ævintýri mín og svaðilfarir. Ég bý með mömmu og pabba í Laugardalnum og á einn risakött sem er gott að nota fyrir kodda
Uppáhaldsjólalag

Jólasveinar 1 og 8

Vinir
Template by
Free Blogger templates